Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, starfandi stjórnarformaður og meðeigandi Bestseller og Jóa Útherja, skorar á íslensk fyrirtæki, fjölmiðla og almenning að leggja sitt af mörkum til að skapa stemningu og styrkja íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fyrir EM 2025.
Í aðdraganda Evrópumóts kvenna í knattspyrnu, sem hefst með opnunarleik Íslands og Finnlands þann 2. júlí á Arena Thun í Sviss, sendir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir skýr skilaboð: nú sé rétti tíminn fyrir þjóðina að standa þétt að baki landsliðinu og efla umgjörð og stuðning við íslenskt íþróttastarf.
Í tengslum við mótið hefur Jói Útherji gefið út lag og tónlistarmyndbandið Veifum fánanum hátt, sem Svanhildur segir ætlað að endurspegla kraftinn, hugrekkið og einlægnina sem einkenni íslenskt íþrótta- og ungmennastarf.
Lagið er unnið í samstarfi við söngkonuna Anítu Rós Þorsteinsdóttur og lagasmiðinn Jón Bjarna Þórðarson og er aðgengilegt á Spotify.
„Við eigum eitt besta íþrótta- og ungmennastarf í heimi,“ segir Svanhildur. „Það byggir í stórum mæli á hugsjón og sjálfboðaliðastarfi um allt land og við eigum að vera stolt af því.“
Samhliða laginu hafa vörur undir merkjum Dóttir verið sett á markað, en það orð var sérstaklega valið fyrir vörulínuna sem virðingarvottur við íslenskar íþróttakonur og þá alþjóðlegu athygli sem þær vekja.
Ágóðinn rennur í sjóð sem ætlað er að styðja önnur landslið þegar fjárhagslegur stuðningur sérsambanda dugar ekki til þátttöku á alþjóðlegum mótum.

Svanhildur hvetur íslensk fyrirtæki til að taka virkan þátt í að skapa stemningu í kringum mótið, með leikjum, tilboðum og öðrum skapandi viðburðum, og kallar jafnframt eftir öflugri umfjöllun fjölmiðla.
Hún segir að sameining þjóðarinnar í kringum slíka viðburði sé meðal þess dýrmætasta sem við eigum. „Nú er komið að íslensku þjóðinni, almenningi, fyrirtækjum og fjölmiðlum, að standa við bakið á stelpunum okkar. Við eigum öll stóran hlut í þessari vegferð og við eigum að halda áfram að byggja og þróa enn sterkara íþróttastarf og skemmtilega íþróttamenningu í kringum afreksfólkið okkar.”
„Ég hlakka mikið til að þessi íþróttaveisla hefjist. Það er fátt skemmtilegra en að sameinast sem fjölskylda og þjóð í kringum viðburði þar sem Ísland tekur þátt. Ég treysti því að íslenskir fjölmiðlar fangi athygli okkar með skemmtilegum fréttaflutningi, umfjöllun og lýsingum af leikjum. Jafnframt skora ég á fyrirtækin í landinu að halda okkur uppteknum með skemmtilegum leikjum, tilboðum og öðru sem búa til stemmningu í kringum mótið og liðið,” segir Svanhildur í samtali við Viðskiptablaðið.