Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur kínversk stjórnvöld til að koma í veg fyrir að Íran loki Hormuzsundi. Sundið er ein mikilvægasta siglingaleið heims en þar í gegn siglir um 20% af allri olíu í heiminum.
Á vef BBC segir að Rubio hafi hvatt Kínverja til aðgerða eftir að íranska sjónvarpsstöðin Press TV greindi frá því að þingið þar í landi hefði samþykkt áætlun um að loka sundinu.
Slík röskun á olíuframboði myndi hafa miklar afleiðingar fyrir hagkerfi heimsins en olíuverð hefur þegar hækkað í kjölfar árásar Bandaríkjanna á kjarnorkuver Írans um helgina.
Kínverjar eru þó stærsti kaupandi íranskrar olíu og hafa því náið samband við stjórnvöld. Samkvæmt skipaeftirlitsfyrirtækinu Vortexa keyptu Kínverjar 1,8 milljónir tunna af olíu á dag frá Íran í síðasta mánuði.
„Ég hvet kínversk stjórnvöld til að hringja í Írani þar sem þau eru mjög háð Hormuzsundi fyrir olíu sína. Lokun sundsins yrði efnahagslegt sjálfsmorð en við höfum möguleika á að takast á við það. Önnur lönd ættu líka að skoða það þar sem þetta myndi skaða hagkerfi annarra landa miklu verr,“ sagði Rubio í viðtali við Fox News í gær.
Hráolíuverð hefur áhrif á margar hliðar hagkerfisins og gæti hækkað bensínverð ásamt verðlagningu á pakkningum í matvöruverslunum.