Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,83% í nóvember, samanborið við 0,18% hækkun í október. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 10,6%, en hún mælist 8,7% í október.

Í frétt á vef HMS kemur fram að á síðustu þremur mánuðum hefur vísitalan hækkað um 0,7%.

HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.

Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3% milli mánaða og hefur nú hækkað um 7,3% á síðustu tólf mánuðum. Í nóvember hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 2,3% milli mánaða og hefur nú hækkað um 12,3% á síðustu tólf mánuðum.

Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni hækkaði um 2,5% milli mánaða og hefur hækkað um 10,6% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni lækkaði um 1,2% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 15,5% á síðasta tólf mánaða tímabili.