Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6% í októbermánuði, samanborið við 0,8% hækkun í september og 0,4% lækkun í ágúst. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 1,0%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 7,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 21,5%. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum hjá HMS.
Það hægist aðeins á árstakti vísitölunnar en til samanburðar mældist tólf mánaða breyting hennar 22,5% september eftir að hafa farið hæst í 25,5% í júlí.
Hækkun vísitölunnar í október má rekja til fjölbýlis en sá liður vísitölunnar hækkaði um 0,9% á milli mánaða. Árshækkun fjölbýlis mælist nú 21,5%, samanborið við 22,3% í september.
Verð á sérbýli lækkaði um 0,7% á milli mánaða eftir að hafa hækkað um 4,8% í september. Vísitala fyrir verð sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 22,5% á ársgrundvelli.