Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% í ágúst, samanborið við 0,8% lækkun í júlí. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,2% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,7%, að því er kemur fram í tilkynningu HMS.

Vísitalan, sem sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, hækkaði um 2,0% á síðustu tólf mánuðum en til samanburðar mældist ársbreytingin 0,8% í júlí. Árstaktur vísitölunnar hækkar á milli mánaða í fyrsta sinn meira en ár.

Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% á milli mánaða. Árshækkun á sérbýlishlutanum mældist 2,6% í ágúst samanborið við 0,3% í júlí.

Verð á fjölbýli hækkaði um 0,9 í ágúst samanborið við 0,2% lækkun í júlí. Árshækkun fjölbýlishlutans mælist nú 2,1% samanborið við 1,2% í júní.