Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5% í janúar, samanborið við 0,7% lækkun í desember. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,4% og um 0,5% á síðustu sex mánuðum, að því er kemur fram í tilkynningu HMS.
Áfram hægist á árstakti vísitölunnar sem mælist nú 14,9% samanborið við 17,4% í desember. Árshækkun vísitölunnar fór hæst í 25,5% í júlí síðastliðnum.
Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 0,7% á milli mánaða. Árshækkun á sérbýlishlutanum mældist 14,6% í janúar samanborið við 16,7% í desember.
Verð á fjölbýli lækkaði um 0,4% á milli mánaða. Árshækkun fjölbýlishlutans mælist nú 15,2%, samanborið við 17,8% í desember.