Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,45% í maí, samanborið við 0,45% hækkun í apríl. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 5,7%, en hún mældist 7,6% í apríl.

Undirvísitölur íbúðaverðs lækkuðu á höfuðborgarsvæðinu en hækkuðu utan höfuðborgarsvæðisins í síðasta mánuði, að því er HMS greindi frá í gær.

Spá tiltölulega rólegum markaði

Greining Íslandsbanka bendir á í grein á vef bankans að þetta er í fyrsta sinn síðan í desember sem vísitala íbúðaverðs lækkar milli mánaða.

Greiningardeild bankans segir útlit fyrir að betra jafnvægi sé á milli framboðs og eftirspurnar á íbúðamarkaði en síðustu ár og gerir hún ráð fyrir tiltölulega rólegum markaði næstu misseri.

„Það sem mun dempa eftirspurn er hægari fólksfjölgun en verið hefur síðustu ár, háir vextir á íbúðalánamarkaði og sömuleiðis ströng lánþegaskilyrði. Aftur á móti mun aukinn uppsafnaður sparnaður heimila og kaupmáttarvöxtur ýta undir eftirspurn,“ segir í grein Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðings í Greiningu Íslandsbanka.

Leiguverð hækkað um 4,9% að raunvirði

HMS tilkynnti síðdegis í dag að vísitala leiguverð hefði hækkað um 1,15% á milli mánaða í maí. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 8,83%, á sama tíma.

Leiguverð hækkaði því um 4,9% að raunvirði á milli maímánaða 2024 og 2025.