Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% í nóvembermánuði, samanborið við 0,6% hækkun í október og 0,8% hækkun í september. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 1,1%, síðastliðna sex mánuði hækkaði hún um 4% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 20,3%. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum hjá HMS.

Það hægist áfram á árstakti vísitölunnar en til samanburðar mældist tólf mánaða breyting hennar 21,5% í október og 22,5% september. Árshækkun vísitölunnar mældist mest í 25,5% í júlí síðastliðnum.

Lækkun vísitölunnar í nóvember má einkum rekja til 1,2% lækkunar á verði sérbýlis. Sérbýlishluti vísitölunnar hefur engu að síður hækkað um 21,6% á síðustu tólf mánuðum.

Verð á fjölbýli lækkaði lítillega á milli mánaða. Árshækkun fjölbýlishlutans mælist nú 20,2%, samanborið við 21,5% í október.