Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,64% í desember, samanborið við 0,83% hækkun í nóvember. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 7,7%, en hún mælist 10,6% í nóvember.
Í frétt á vef HMS segir að er bent á að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 4,8% á síðastliðnum tólf mánuðum. Íbúðaverð hafi því hækkað um 2,8% að raunvirði á milli desembermánaða 2023 og 2024, samanborið við 5,6 prósenta raunhækkun í nóvember.
Lækkunin drifin áfram af höfuðborgarsvæðinu
HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar.
Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% milli mánaða og hefur nú hækkað um 6,9% á síðustu tólf mánuðum. Í desember lækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 2,2% milli mánaða og hefur nú hækkað um 9,3% á síðustu tólf mánuðum.
Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni hækkaði um 1,6% milli mánaða og hefur hækkað um 11,6% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,4% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 5,0% á síðasta tólf mánaða tímabili.