Icelandair mun í þriðja sinn bjóða upp á sérstaka flugnámsbraut fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á að starfa í háloftunum. Valið verður inn í námið úr umsóknum og fer námið fram í norska flugskólanum PFA (Pilot Flight Academy).

Í tilkynningu frá Icelandair segir að sérstaklega verði litið til þeirra sem klára flugnámsbrautina við ráðningar í störf flugmanna. Með þessum hætti vill félagið bregðast við fyrirsjáanlegri þörf á flugmönnum. Gert er ráð fyrir að fyrstu nemendur hefji nám strax í vetur.

„Sem eyja á Ísland mikið undir flugsamgöngum. Því er áríðandi að hér sé boðið upp á góða möguleika til menntunar í þeim sérhæfðu störfum sem sinnt er í flugi. Þó að við hjá Icelandair finnum enn fyrir mikilli eftirspurn eftir störfum hjá okkur er mjög mikilvægt að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins og tryggja okkur gott starfsfólk til framtíðar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Flugnámsbraut Icelandair stóð fyrst til boða árið 2017 og nú eru yfir þrjátíu flugmenn úr námsleiðinni við störf hjá félaginu. Námið er ætlað fólki á aldrinum 18-30 ára sem hefur lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun.