Á liðnu ári flutti Icelandair 3,7 milljónir farþega, 150% fleiri en árið 2021 þegar félagið flutti 1,5 milljón farþega. Flugframboð Icelandair á nýliðnu ári var um 91% af framboði ársins 2019 í desember.

Heildarfjöldi farþega í innanlands- og millilandaflugi var 233.500 í desember. Farþegar í millilandaflugi voru 214 þúsund. Farþegar til Íslands voru 79 þúsund og frá Íslandi um 50 þúsund. Tengifarþegar voru um 85 þúsund.

Sætanýting í millilandaflugi var 73%, samanborið við 71% í desember 2021. Stundvísi í millilandaflugi var 62,4%.

„Miklar raskanir vegna veðursfars og þá sérstaklega lokun Reykjanesbrautarinnar hafði umtalsverð áhrif á stundvísi, sætanýtingu og flugáætlunina í heild í mánuðinum,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Farþegar í innanlandsflugi voru um 20 þúsund. Stundvísi var 81%, þrátt fyrir umtalsverðar raskanir vegna veðurs. Sætanýting var 73% samanborið við 70% nýtingu í desember 2021.

Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 13% samanborið við desember 2021. Fraktflutningar voru jafnmiklir og í desember 2021.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Árið 2022 var ár mikillar uppbyggingar í kjölfar Covid faraldursins. Við höfum jafnt og þétt fjölgað flugtengingum og aukið flugframboð og í desember var framboðið 91% af framboði ársins 2019. Eftir því sem áhrif faraldursins fóru dvínandi náði starfsfólk Icelandair að byggja starfsemina upp hratt og örugglega.

Innanlandsflugið hefur náð sér vel á strik og leiguflugsstarfsemin einnig með verkefnum um allan heim. Leiguflugstarfsemin er mikilvægur þáttur í að minnka árstíðarsveiflu í rekstrinum og nýta bæði flugvélar og áhafnir þegar umsvif í leiðakerfinu eru minni. Stór áfangi náðist nú í lok árs í flugfraktinni þegar við tókum á móti Boeing 767 breiðþotu í fraktflotann. Þar erum við að setja aukna áherslu á að nýta Keflavíkurflugvöll sem tengimiðstöð fyrir flugfrakt á milli heimsálfa, sambærilegt við það sem félagið hefur gert á árangursríkan hátt í farþegaflutningum um árabil. Þetta mun skapa ný og spennandi tækifæri fyrir inn- og útflutningsaðila á Íslandi.

Við erum stolt af starfsfólki okkar og hvernig því tókst við mjög krefjandi aðstæður að tryggja að langflestir af þeim 24 þúsund farþegum okkar sem lentu í röskunum fyrir jólin komust á sinn áfangastað. Raskanir sem þessar hafa mikil áhrif á viðskiptavini okkar, upplifun ferðamanna af landi og þjóð og tengingar Íslands við umheiminn. Reykjanesbrautin er mjög mikilvæg lífæð fyrir Ísland og við leggjum því mikla áherslu á að stjórnvöld komi í veg fyrir að sambærilegar aðstæður skapist aftur.“