Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust en Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september. Félagið hefur einnig tilkynnt um flug til Istanbul og Miami.

Vegna mikillar eftirspurnar hefur flugáætlun til Nashville verið framlengd inn í janúar og flugtímabilið til Hamborgar verið framlengt út október. Þá verður tíðni aukin til Alicante, Barcelona og Brussel.

Flogið verður til Malaga einu sinni til tvisvar í viku frá 6. september til 30. maí og er flugtími fjórar klukkustundir og 45 mínútur. Þá verður flogið til Edinborgar þrisvar til fjórum sinnum í viku frá 12. september til 12. apríl.

„Í fyrsta sinn í sögunni tilkynnum við fjóra nýja áfangastaði yfir vetrartímann og er það í takt við stefnu okkar um að vaxa utan háannatíma sumarsins en með innkomu nýrri og hagkvæmari flugvéla í flotann opnast tækifæri fyrir stærri vetraráætlun. Þannig getum við nýtt innviði okkar betur yfir vetrartímann og á sama tíma stuðlað að minni árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.