Icelandair mun bæta Gautaborg í Svíþjóð við leiðakerfið sumarið 2025. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum frá 19. júní til 31. ágúst.

Gautaborg er önnur stærsta borg Svíþjóðar og segir í tilkynningu frá Icelandair að árlega sæki fjöldi íslenskra barna og unglinga þrjú stór íþróttamót sem þar eru haldin.

„Það er mjög ánægjulegt að bjóða aftur upp á flug til Gautaborgar yfir sumartímann. Við höfum fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir flugi til borgarinnar á meðal ferðaskipuleggjenda og viðskiptavina okkar, en þúsundir íslenskra íþróttaiðkenda heimsækja borgina ár hvert og oft fylgja heilu fjölskyldurnar sínu fólki,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.