Icelandair hefur tilkynnt Tel Aviv, næst stærstu borgar Ísraels, sem nýjan áfangastað fyrir næsta sumar. Flogið verður þrisvar í viku frá Keflavíkurflugvelli, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum frá 10. maí til 29. október. Flugtíminn frá Íslandi er um sjö klukkustundir.

„Eftirspurn eftir flugi frá Tel Aviv til Íslands hefur aukist undanfarið samhliða fjölgun ísraelskra ferðamanna. Auk þess er flogið á tíma sem hentar vel til tenginga við flug Icelandair til Bandaríkjanna og Kanada,“ segir í tilkynningu Icelandair.

„Tel Aviv er spennandi nýr áfangastaður sem passar vel inn í viðskiptalíkan okkar en mikil eftirspurn er eftir ferðum á milli Ísrael og Bandaríkjanna. Þá er þetta einnig góð viðbót við flóruna sem Íslendingum stendur til boða í beinu flugi en Tel Aviv býður upp á skemmtilega blöndu menningar, sögu og sólarstranda,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Auk Tel Aviv hefur Icelandair boðað flug næsta sumar til Barcelona, Prag og Detroit. Þá ákvað flugfélagið einnig að lengja flugtímabil til Rómar og Nice á næsta ári.