Úrvalsvísitalan hefur hækkað um hálft prósent það sem af er degi en hlutabréf átta félaga aðalmarkaðarins hafa hækkað í dag og tíu félaga lækkað.
Icelandair hefur hækkað mest af félögum aðalmarkaðarins eða meira en 3% í 350 milljóna króna veltu. Gengi Icelandair stendur í 1,11 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð.
Hlutabréfaverð Icelandair hefur nú hækkað um 9% frá því á mánudaginn síðasta þegar gengi félagsins nam 1,01 krónu á hlut. Þess má geta að greiningarfyrirtækið Akkur birti greiningu á Icelandair á dögunum, sem fjallað er um í Viðskiptablaði vikunnar, þar sem markgengi flugfélagsins í lok ársins er metið á 2,1 krónu.
Auk Icelandair hafa hlutabréf reita, JBT Marels, Heima og Haga hækkað um meira en eitt prósent í dag. Hagar birtu ársfjórðungsuppgjör eftir lokun markaða í gær.
Hlutabréf þriggja félaga hefur lækkað um 1% eða meira í dag; Amaroq Minerals, Ísfélagið og Kaldalón.