Gengi Icelandair hækkaði um 4,95% við opnun markaða í morgun. Gengið stendur nú í 1,06. Í Viðskiptablaðinu á morgun verður birt verðmat á félaginu sem Akkur -greining og ráðgjöf gerði í síðustu viku.
Gengishækkun Icelandair kemur í beinu framhaldi af verðhruni á hráolíu, en um 20-25% af tekjum félagsins fara í olíukaup. Það hlutfall hefur farið lækkandi eftir að sparneytnari vélar hafa verið keyptar.
Lítil viðskipti hafa verið með Play í morgun og hefur félagið hækkað um 0,56% í aðeins 180 þúsund króna viðskiptum. Flugfélög í Evrópu hafa hækkað mun meira en íslensku félögin.
IAG, móðurfélag British Airways, Iberia, Vueling og fleiri félaga, hefur hækkað um 5,34%. Air France -KLM hefur hækkað um 9,5%, Lufthansa um 5,81%, Easy Jet um 6,43% og Wizz air um 3,43.
Bandarísk flugfélög hækkuðu einnig í gærkvöldi, fyrir lokun á Wall Street, en nokkuð minna en þau evrópsku.