Icelandair og portúgalska flugfélagið TAP hafa undirritað samstarfssamning um sammerkt flug. Undirritunin fór fram á skrifstofum TAP á Lissabon flugvelli fyrr í dag.

Í tilkynningu segir að flugfélögin hafi unnið saman um árabil en með sammerktu flugi geta viðskiptavinir nýtt tengingar á milli leiðakerfa flugfélaganna.

„Það er mjög spennandi að bæta TAP við öflugan hóp samstarfsflugfélaga okkar. Við hófum nýverið flug til Lissabon og með því að bjóða einnig upp á sammerkt flug með TAP getum við stóraukið úrval áfangastaða í tengiflugi,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

TAP flýgur til um 90 áfangastaða víða um heim, meðal annars í Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Á meðal áhugaverðra staða í leiðakerfi TAP eru Rio de Janeiro, São Paulo, Porto og Grænhöfðaeyjar.

„Samstarfið við Icelandair mun auka úrval ferðamöguleika og áfangastaða sem viðskiptavinir okkar geta valið úr. Þannig munu opnast þægilegar tengingar til Íslands, sem er einn af mest spennandi áfangastöðunum í dag, og fjölmargar tengingar fyrir viðskiptavini Icelandair um öflugt leiðakerfi okkar frá Lissabon,“ segir Luís Rodrigues, forstjóri TAP.

Gert er ráð fyrir að tvíhliða samningur TAP og Icelandair um sammerkt flug taki gildi á næstu vikum og þá munu viðskiptavinir geta tengt á milli leiðakerfa flugfélaganna í einum miða með farangurinn innritaðan alla leið á lokaáfangastað.