Icelandair hefur samið við fyrirtækið CAE um kaup á flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar sem félagið tekur í notkun síðar á árinu, að því er kemur fram í tilkynningu. Nýi Airbus hermirinn verður sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.

Flughermirinn verður settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði seinni hluta árs 2025 og verður rekinn af CAE Icelandair Flight Training.

Icelandair hefur samið við fyrirtækið CAE um kaup á flughermi fyrir Airbus A321 flugvélar sem félagið tekur í notkun síðar á árinu, að því er kemur fram í tilkynningu. Nýi Airbus hermirinn verður sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.

Flughermirinn verður settur upp í þjálfunarsetri Icelandair í Hafnarfirði seinni hluta árs 2025 og verður rekinn af CAE Icelandair Flight Training.

Icelandair undirritaði samning við Airbus í júlí 2023 um kaup á 13 Airbus A321XLR flugvélum og kauprétt að tólf vélum til viðbótar. Auk þess hefur félagið tryggt sér langtímaleigu á sjö nýjum A321LR þotum.

Í flugherminum verður nákvæm eftirlíking stjórnklefa Airbus A320 flugvélafjölskyldunnar. Hermirinn líkir eftir flugeiginleikum vélanna auk þess sem unnt er að kalla fram óvæntar aðstæður, breytileg veðurskilyrði og fleira til þess að þjálfa viðbrögð flugmanna.

Flughermar eru notaðir til þjálfunar nýrra flugmanna sem og reglubundinnar þjálfunar starfandi flugmanna sem þurfa að fara í endurþjálfun tvisvar á ári.

CAE Icelandair Flight Training hefur rekið flugherma fyrir Boeing flugvélar Icelandair í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði frá árinu 2015 en fyrir þann tíma fór hermaþjálfun flugmanna Icelandair fram erlendis.

Iclandair segir að flughermar félagsins í Hafnarfirði hafi einnig verið vinsælir hjá erlendum flugfélögum og því hafi rekstur þeirra gengið vel.

„Það er mjög ánægjulegt að tilkynna samninginn við CAE og styrkja frekar það góða samstarf sem við höfum átt við fyrirtækið um árabil. Sem eyja í miðju Atlantshafinu reiðir Ísland sig á flug og mikilvægur þáttur í því að halda uppi góðum flugsamgöngum til og frá landinu er að hér sé aðstaða til þess að bjóða upp á fyrsta flokks þjálfun flugmanna,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair.

„Airbus flughermirinn er nýjasta skrefið í áralöngu samstarfi okkar við Icelandair og við hlökkum til að starfa með félaginu við innleiðinguna á Airbus A321 flugvélum. Flughermirinn er mjög tæknilega fullkominn en hann mun styðja við öflugt þjálfunarstarf Icelandair og gera flugmenn tilbúna til þess að fljúga Airbus A321 flugvélunum á öruggan hátt með góða upplifun farþega í fyrirrúmi,“ er haft eftir Michel Azar-Hmouda, yfirmanni farþegaflugsdeildar CAE.

Sylvía og James ásamt Alain Lamontagne, sölustjóra hjá CAE, Hauki Reynissyni, flugrekstrarstjóra Icelandair, Halldóri Karli Þórissyni, viðhaldsstjóra CAE Icelandair Flight Training og Ásgeiri Bjarna Lárussyni, framkvæmdastjóra CAE Icelandair Flight Traini
© Aðsend mynd (AÐSEND)