Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,6% í 2,8 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Langmesta veltan, eða um 1,1 milljarður króna, er með hlutabréf Íslandsbanka. Gengi bankans hefur staðið í stað í 119 krónum á hlut í samtals fleiri en 190 viðskiptum.
Fjögur félög aðalmarkaðarins hafa lækkað um eitt prósent eða meira í dag. Flugfélögin Icelandair og Play hafa lækkað um 3,0-3,5%, en velta með bréf síðarnefnda félagsins nemur þó undir einni milljón króna.
Gengi Icelandair hefur fallið um 3,5% í 190 milljóna króna veltu og stendur nú í 1,09 krónum á hlut. Flugfélagið greindi frá flutningatölum fyrir maímánuð en farþegafjöldinn jókst um 13% milli ára og sætanýting var tæplega 80%.
Brim lækkar um 3%
Hlutabréfaverð Brims hefur lækkað um 3% í hátt í 300 milljóna króna veltu og stendur nú í 65 krónum á hlut. Lækkunin kann að skýrast af ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, sem felur m.a. í sér 4% lækkun aflamarks á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Gengi Ísfélagsins hefur hækkað um 0,8% í yfir 150 milljóna veltu og hlutabréfaverð Síldarvinnslunnar hefur staðið í stað í rúmlega 50 milljóna veltu.
Oculis og JBT Marel hafa hækkað mest af félögum Kauphallarinnar eða um meira en 3% hvort. Gengi Oculis stendur í 2.540 krónum eftir 3,7% hækkun í dag og hlutabréfaverð JBT Marels er komið í 15.400 krónur.