Úrvalsvísitalan féll um 1,1% í 2,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Af 28 félögum aðalmarkaðarins lækkaði gengi hlutabréfa 23 félaga.

Fjögur félög lækkuðu um meira en tvö prósent í dag. Af þeim lækkuðu Icelandair og Amaroq Minerals mest eða um 2,7%.

Gengi Icelandair hækkaði um 2,8% í gær, eftir að upplýst var áform fjárfestahóps sem hyggst leggja fram yfirtökutilboð í Play eftir lokun markaða á þriðjudaginn. Gengi Icelandair er nú aftur komið niður í 1,07 krónur á hlut. Gengi Play hækkaði lítillega í dag og stóð í 0,91 krónu á hlut við lokun markaða.

Hlutabréfaverð Amaroq Minerals lækkaði um 2,7% í 73 milljóna veltu í dag og stendur nú í 143 krónum á hlut.

Málmleitarfélagið tilkynnti eftir lokun maí gær um að félagið væri að ráðast í fimm milljarða króna hlutafáraukningu á genginu 144 krónur á hlut. Tilkynnt var um niðurstöðu útboðsins í gærkvöldi en ríflega 90% þess samanstóð af hópi stofnanafjárfesta frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Evrópu.

Samhliða tilkynnti Amaroq um kaup á fyrirtækinu Black Angel Mining og áformuðu kaup á rannsóknarleyfum félagsins Kangerluarsuk‏.

Mesta veltan á markaðnum var með hlutabréf Arion banka en gengi bankans féll um 0,3% í stendur nú í 168 krónum á hlut.