Icelandair og Emirates skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samstarf á ITB ferðasýningunni í Berlín í dag. Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu flugfélögin vinna að samningi um sammerkt flug sem mun gera viðskiptavinum kleift að tengja á þægilegan hátt á milli leiðakerfa flugfélaganna.

Icelandair og Emirates skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samstarf á ITB ferðasýningunni í Berlín í dag. Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu flugfélögin vinna að samningi um sammerkt flug sem mun gera viðskiptavinum kleift að tengja á þægilegan hátt á milli leiðakerfa flugfélaganna.

Icelandair segir í fréttatilkynningu að samstarf flugfélaganna muni stórauka framboð beggja félaga á tengingum þar sem viðskiptavinir geta ferðast á einum farmiða á milli leiðakerfa félaganna og innritað farangurinn alla leið á lokaáfangastað.

„Það er mjög ánægjulegt að segja frá samstarfi við Emirates sem við vinnum nú að en það mun opna nýja og spennandi ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar um Miðausturlönd og Asíu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Emirates verður sjöunda alþjóðlega samstarfsflugfélag okkar en við vinnum markvisst að því að fjölga samstarfsflugfélögum sem bæði styrkir tekjumyndun félagsins og víkkar út leiðakerfi okkar. Við leggjum áherslu á samstarf við félög sem bjóða frábæra þjónustu og spennandi tengingar sem á svo sannarlega við um Emirates.“

Icelandair hefur lagt áherslu á að fjölga samstarfssamningum við önnur alþjóðleg flugfélag og tilkynnti m.a. um samning við Turkish Airlines í júní síðastliðnum.

„Við erum mjög ánægð með að efla samstarf okkar við Icelandair. Leiðakerfi félagsins er góð viðbót við leiðakerfi okkar í Evrópu þar sem það bætir við fjölda tenginga og gefur viðskiptavinum okkar tækifæri á enn fjölbreyttari ferðalögum. Við höfum fulla trú á að samstarfið muni skila raunverulegum ávinningi fyrir Emirates og viðskiptavini okkar og við erum spennt fyrir því að styrkja samstarfið enn frekar til framtíðar,“ er haft eftir Adnan Kazim, aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra sölu hjá Emirates.