Icelandair og ítalska flugfélagið ITA hafa undirritað samning um sammerkt flug. Samningurinn gerir viðskiptavinum kleift að ferðast á auðveldan máta um leiðakerfi flugfélaganna tveggja og opnar þannig spennandi ferðamöguleika.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að hægt verði að bóka sammerkt flug frá og með deginum í dag fyrir ferðir sem hefjast frá og með 20. janúar 2025.

„Það er ánægjulegt að bæta ITA við öflugan hóp samstarfsflugfélaga okkar. Í samstarfi við ITA getum við boðið viðskiptavinum okkar góðar tengingar á milli leiðakerfa flugfélaganna tveggja. ITA flýgur til margra spennandi áfangastaða og er félagið þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Í fyrsta áfanga verða opnaðar tengingar í gegnum Róm á milli Íslands og fjölda áfangastaða ITA, meðal annars Bologna, Flórens, Feneyja og Napólí. Með samningnum geta viðskiptavinir ferðast á einum miða með farangurinn innritaðan alla leið á lokaáfangastað.

„Það er okkur sönn ánægja að undirrita þennan samstarfssamning við Icelandair. Samningurinn er í takt við stefnu ITA Airways um að styrkja leiðakerfið og með honum opnum við öflugar tengingar fyrir farþega um Róm og Reykjavík. Samningurinn við Icelandair er 37. samstarfssamningurinn sem við gerum, frábær árangur sem við höfum náð á einungis þremur árum,“ segir Andrea Benassi, forstjóri ITA Airways.

Þá segir einnig að flugfélögin muni útvíkka samstarfið og bæta við tengingum um marga af sameiginlegum áfangastöðum flugfélaganna í Evrópu.