Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest Airlines undirrituðu í gær samstarfssamning og verður Icelandair þar með fyrsta samstarfsflugfélag Southwest. Samningurinn var undirritaður í sendiherrabústað Íslands í Washington.
Samstarfið, sem hefjast mun í febrúar, mun gefa viðskiptavinum tækifæri á tengingum milli leiðakerfa flugfélaganna tveggja.
„Það er mjög ánægjulegt að undirrita þennan samstarfssamning við Southwest Airlines og erum við mjög stolt af því að þau hafi valið okkur sem sitt fyrsta samstarfsflugfélag. Með samstarfinu munu opnast öflugar tengingar með Southwest til fjölda áfangastaða vestanhafs,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair.
Southwest er stærst flugfélaga í Bandaríkjunum hvað innanlandsflug varðar og býður upp á flug til fjölda áfangastaða um Bandaríkin.
Áður hafði verið tilkynnt um viljayfirlýsingu um að félögin hygðust hefja samstarf um flugtengingar um Baltimore-Washington flugvöll en í dag var tilkynnt um að fyrir sumarið verði einnig hægt að tengja á milli leiðakerfa flugfélaganna í Nashville og Denver.
„Það er við hæfi að við hefjum þennan nýja kafla í sögu okkar með samstarfi við góða vini okkar hjá Icelandair. Við erum spennt fyrir að geta boðið viðskiptavinum beggja flugfélaga aðgang að nýjum áfangastöðum og þægilegri ferðaupplifun en erum ekki síst þakklát fyrir að hafa notið sérfræðiþekkingar starfsfólks Icelandair sem aðstoðaði okkur við að koma samstarfinu á fót,“ segir Ryan Green, framkvæmdastjóri umbreytinga hjá Southwest Airlines.