Icelandair tapaði 20,2 milljónum Bandaríkjadala árið 2024, sem samsvarar 2,8 milljarða króna tapi. Til samanburðar hagnaðist flugfélagið um 1,5 milljarða árið 2023. Flugfélagið birti ársreikning eftir lokun Kauphallarinnar í dag.
Tekjur félagsins í fyrra námu 1.570 milljónum dala eða um 216 milljörðum króna, samanborið við 210 milljarða árið 2023.
Bogi: „Verulegur rekstrarbati á fjórða ársfjórðungi“
Í uppgjörstilkynningu Icelandair segir að heildartekjur á fjórða ársfjórðungi hafi aukist um 10% frá sama tímabili í fyrra og numið 48 milljörðum króna. Þá hafi EBIT afkoma á fjórðungnum batnað um 2,5 milljarða króna, en EBIT á tímabilinu var neikvætt um 4,4 milljarða króna.
„Við náðum verulegum rekstrarbata á fjórða ársfjórðungi í öllum einingum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu. „Þróun einingatekna er að snúast við og náðum við að draga úr áhrifum ýmissa kostnaðarhækkana með áherslu á umbætur í rekstri.
Bogi segir rekstrarniðurstöðu ársins í heild hafa verið í takt við afkomuspá sem félagið gaf út í október síðastliðnum.
„Horfur fyrir árið 2025 eru góðar og bókunarstaðan nú er sterkari en á sama tíma í fyrra. Við áætlum að auka flugframboð um 8% á árinu, með áherslu á vöxt utan háannar sem gerir okkur kleift að nýta innviði betur og bjóða viðskiptavinum okkar upp á fleiri ferðamöguleika en nokkru sinni áður.“
Bogi segir að góður árangur hafi náðst í rekstri leiðakerfisins sem endurspeglist m.a. í góðri stundvísi. Þá hafi verið viðsnúningur í rekstri fraktstarfseminni og leiguflugið hélt áfram að skila góðri afkomu.
Gera ráð fyrir hagnaði á næsta ári
Icelandair gerir ráð fyrir að hagnaður verði af rekstri félagsins árið 2025 í „ljósi sterkrar bókunarstöðu, áframhaldandi áherslu á auka hagkvæmni í rekstri og árangri af ONE umbreytingavegferðinni“ segir í tilkynningu Icelandair. Gert er ráð fyrir afkomubata í öllum einingum á milli ára.
Icelandair áætlar að að EBIT-afkoma árið 2025 verði jákvæð um 5,5-8 milljarðar króna.
„Afkomuspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi jákvæðri þróun á markaðnum til Íslands í samanburði við árið 2024 og þá er staðan á Atlantshafsmarkaðnum og í innanlandsfluginu áfram góð.“
Hagræðingaraðgerðir skili hátt í 10 milljörðum á ári
Til þess að bæta árangur og afkomu félagsins til lengri tíma, bendir Bogi á að Icelandair hafi ráðist í yfirgripsmikla umbreytingarvegferð snemma á árinu 2024.
Hann segir að í lok ársins hafi Icelandair þegar ráðist í hagræðingarverkefni sem munu skila yfir 20 milljónum dala, eða hátt í þrjá milljarða króna á ársgrundvelli.
Samtals geri Icelandair ráð fyrir að vegferðin muni skila samtals 70 milljónum dala, eða hátt í 10 milljörðum króna, á ársgrundvelli í lok árs 2025 í kjölfar frekari umbóta á þessu ári.
„Það má segja að árið 2024 hafi markað nýtt upphaf fyrir Icelandair þegar við tókum á móti fyrstu Airbus flugvélinni í lok árs og fluttum í nýja Icelandair húsið í Hafnarfirði.“
Sjóðsstreymi frá rekstri nam 30,5 milljörðum króna á árinu og jókst um 828 milljónir króna milli ára. Icelandair segir lausafjárstöðu félagsins sterka í lok árs eða 48 milljarða króna.