Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja samstarf á árinu 2025. Icelandair verður fyrsta samstarfsflugfélag Southwest, að því er segir í fréttatilkynningu.

Southwest er stærsta lággjaldaflugfélag Bandaríkjanna og eitt stærsta flugfélag heims.

Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja samstarf á árinu 2025. Icelandair verður fyrsta samstarfsflugfélag Southwest, að því er segir í fréttatilkynningu.

Southwest er stærsta lággjaldaflugfélag Bandaríkjanna og eitt stærsta flugfélag heims.

Icelandair segir að samstarfið muni gefa viðskiptavinum tækifæri á þægilegum tengingum á milli leiðakerfa flugfélaganna tveggja. Fyrst um sinn munu flugfélögin bjóða upp á flugtengingar um Baltimore-Washington flugvöll.

„Aukin áhersla á samstarf við flugfélög hefur útvíkkað markaðstækifæri Icelandair og styrkir enn frekar öflugt leiðakerfi félagsins, sem samanstendur af 34 áfangastöðum í Evrópu og 17 í Norður-Ameríku.“

Icelandair þannig hóf á dögununum samstarf við Emirates og skrifaði undir samstarfssamning við Turkish Airlines í fyrra. Icelandair er einnig með samstarfssamninga við JetBlue, Air Baltic, Alaska Airlines, Finnair og SAS.

„Við erum mjög spennt fyrir því að Southwest bætist í öflugan hóp samstarfsflugfélaga okkar og erum stolt af því að þau hafi valið okkar sem sitt fyrsta samstarfsflugfélag. Samstarfið mun opna spennandi ferðamöguleika fyrir okkar viðskiptavini og okkar öfluga leiðakerfi í Evrópu mun sömuleiðis opnast fyrir viðskiptavinum Southwest,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Við höfum skýra stefnu um að hefja samstarf við flugfélög sem þekkt eru fyrir að veita frábæra þjónustu og öflugar tengingar, og það er Southwest svo sannarlega. Við bjóðum Southwest velkomin í hóp samstarfsaðila og hlökkum til að vinna saman að því að bjóða viðskiptavinum okkar upp á þægilega og ánægjulega ferðaupplifun.“

„Icelandair verður fyrsta samstarfsflugfélagið okkar en félagið deilir með okkur áherslum á hlýjar móttökur og góða upplifun. Með samstarfinu munum við framlengja leiðakerfi okkar enn frekar, en nú bjóðum við upp á flug til um 120 áfangastaða í Norður-Ameríku. Við erum þakklát fyrir traustið og samstarfsviljann sem nú hefur tengt leiðakerfi okkar frábæru flugfélaga með það að markmiði að bæta þjónustuna við viðskiptavini beggja vegna Atlantshafsins,“ er haft eftir Ryan Green, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Southwest.