Icelandia og PAC 1501 ehf. hafa undirritað samkomulag um kaup á dagsferðaþjónustu Reykjavik Sightseeing og rekstri Bushostel við Skógarhlíð.
Viðskiptin ná til vörumerkjanna Reykjavik Sightseeing og Airport Direct og fela í sér yfirfærslu á vörumerkjum og rekstri sem verða hluti af starfsemi Icelandia. Dagsferðir Reykjavik Sightseeing verða því sameinaðar dagsferðum Reykjavik Excursions.
Einnig er unnið að framsali á leyfissamningi fyrir vörumerkið Gray Line til Icelandia en sá samningur er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins, sem er með málið til skoðunar.
„Tilgangur kaupanna er að styrkja enn frekar rekstur dagsferða Icelandia, auka úrval þeirra og bæta þjónustu við ferðamenn. Miklar kostnaðarhækkanir hafa orðið á undanförnum árum og hafa verðhækkanir ekki haldið í við þær. Með aukinni veltu náum við að auka sætanýtingu og þar með að draga úr kostnaði við hvern farþega,“ segir Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia.
Með sölunni lýkur PAC 1501 ehf. formlega þátttöku sinni í dagsferða- og gistirekstri við Skógarhlíð. Ákvörðunin er liður í endurskipulagningu á starfsemi félagsins og fækkun rekstrarþátta með það að markmiði að einfalda rekstur og einbeita sér að öðrum sviðum ferðaþjónustu og samgöngum.
„Við erum stolt af því sem við höfum byggt upp með Reykjavik Sightseeing, Airport Direct og Bushostel á undanförnum árum. Við teljum að Icelandia sé vel til þess fallið að leiða næstu skref í þróun þessarar þjónustu. Við viljum einnig þakka öllu því frábæra starfsfólki sem hefur lagt hönd á plóg – án þeirra hefði þessi vegferð ekki verið möguleg.“ segir Hjörvar S. Högnason, framkvæmdastjóri PAC 1501 ehf.