Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) hefur ákveðið að nýta sér heimild til hækkunar á iðgjöldum frá og með 1. janúar 2025 og verða þau innheimt með 50% álagi samhliða brunatryggingariðgjöldum.
Iðgjald fyrir húseignir, innbú og annað lausafé fer úr 0,025% í 0,0375% af vátryggingarfjárhæð.
Sem dæmi um áhrif þessara breytinga mun iðgjald til NTÍ af 80 milljón króna eign hækka úr 20.000 krónum á ári í 30.000 krónur á ári og iðgjald af innbústryggingu á 20 milljón króna innbúi mun hækka úr 5.000 íkrónur í 7.500 krónur á ári.
„Atburðirnir, sem átt hafa sér stað á Reykjanesi undanfarið, hafa haft veruleg áhrif á fjárhagslega stöðu NTÍ. Stofnunin þarf á hverjum tíma að eiga fjármuni til að greiða bætur vegna tjóns á húseignum, innbúi og öðru lausafé sem vátryggt er hjá NTÍ,“ segir í fréttatilkynningu.
Alþingi samþykkti nýverið breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um 50%.
Náttúruhamfaratrygging Íslands er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að vátryggja húseignir og brunatryggt lausafé, þ.m.t. innbú, gegn tjóni af af völdum jarðskjálfta, eldgosa, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.
Meðal þeirra gjalda sem innheimt eru samhliða brunatryggingaiðgjöldum hjá almennu vátryggarfélögunum (Sjóvá, TM, Verði og VÍS) er lögbundið iðgjald sem rennur til Náttúrhamfaratryggingar Íslands (NTÍ). Iðgjaldið hefur í áratugi verið innheimt óháð áhættu, af eignum um allt land sem fast hlutfall af brunabótamati húseigna og vátryggingarfjárhæðum lausafjár.