Samninganefndir Fagfélaganna (RSÍ, VM og MATVÍS) samþykktu á fundi í dag að stofna aðgerðahóp til að undirbúa verkfallsaðgerðir. Þetta kemur fram á heimasíðu Rafiðnaðarsambands Íslands.

Fagfélögin hafa í samfloti fleiri félaga vinnandi stétta freistað þess að ná kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins fyrir almennan vinnumarkað en þær viðræður hafa dregist á langinn og enn sér ekki til lands.

Á annað hundrað manns, meðlimir samninganefndanna, mættu á fundinn í Húsi fagfélaganna í dag. Eins og Fagfélögin greindu frá í síðustu viku gáfu samninganefndir Fagfélaganna fulltrúum sínum við samningaborðið 10 daga til að ná samningum, ellegar yrði farið í undirbúning aðgerða.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Fagfélaganna, kynnti samninganefndum stöðu mála í dag. Í máli hans kom meðal annars fram að lítið hefur áunnist við samningaborðið í Karphúsinu og fátt bendir til að skrifað verði undir kjarasamninga á næstu dögum.

Hópurinn mun skila tillögum sínum næstkomandi föstudag en ljóst er að mikill vilji sé meðal félagsfólks þessara félaga til að leggja niður störf til að knýja á um kjarabætur.