Donald Trump Bandaríkjaforseti íhugar að tilkynna fyrr en til stóð um tilnefningu sína til embætti seðlabankastjóra Bandaríkjanna, samkvæmt heimildarmönnum The Wall Street Journal.
Trump hefur ekki farið leynt með óánægju sína með störf Jerome Powell, núverandi seðlabankastjóra sem á 11 mánuði eftir af skipunartíma sínum, en forsetinn hefur kallað eftir að vextir verði lækkaðir hraðar. Fyrir rúmri viku síðan lýsti Trump seðlabankastjóranum sem „heimskri manneskju“ (e. stupid person).
Á undanförnum vikum hefur forsetinn gefið til kynna að hann gæti tilkynnt um eftirmann Powell í september eða október, samkvæmt heimildarmönnum WSJ. Einn þeirra sagði að reiði Trumps í garð Powell gæti leitt til þess að hann gæti tilkynnt um tilnefningu sína strax í sumar.
Venjan er að tilkynnt er um tilnefningu til embættis seðlabankastjóra í Bandaríkjanna með þriggja til fjögurra mánaða fyrirvara. Í umfjöllun WSJ segir að með því að tilkynna um eftirmann fyrr en vanalega gæti eftirmaður Powell mögulega verið í þeirri stöðu að geta haft áhrif á væntingar fjárfesta um líklega vaxtaþróun.
Meðal þeirra sem Trump er með til skoðunar eru Kevin Warsh, sem sat í stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna, Kevin Hassett, einn efnahagsráðgjafa forsetans. Þá kemur fjármálaráðherrann Scott Bessent einnig til skoðunar.
Trump sagði á blaðamannafundi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagins í gær að hann sé með þrjá til fjóra kandídata í huga. Hann bætti við að hann telji heppilegt að lítið sé eftir af skipunartíma Powell „þar sem ég tel hann vera afleitan“.