Í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabanka Íslands í dag hefur Indó-sparisjóður ákveðið að lækka vexti á inn- og útlánum sínum.
Vextir á debetreikningum, sparibaukum, yfirdrætti og færslusplitti lækka um það sem nemur lækkun Seðlabankans, eða um 0,25 prósentustig.
Vextir í indó eftir breytingar verða því:
- Á debetreikningum: 2,00%
- Á sparibaukum: 6,85%
- Á yfirdrætti í virkri endurgreiðslu: 12,75%
- Á yfirdrætti án virkrar endurgreiðslu: 14,75%
- Á færslusplitti: 14,75%
- Á fyrirframgreiddum launum: 0%
„Vaxtalækkun indó endurspeglar því alfarið vaxtalækkun Seðlabankans í dag. Vaxtalækkun á debetreikningum tekur gildi frá og með 19. maí í samræmi við ákvæði laga. Aðrar breytingar taka gildi í dag, þann 19. mars,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.