Utanríkisráðherra Indlands, S Jaishankar, segist vongóður um að ríkisstjórn Indlands nái viðskiptasamningi við Bandaríkin áður en hinu 90 daga hléi, sem gert var á beitingu tolla, ljúki þann 9. júlí nk.

Ráðherrann sagði þetta við franska dagblaðið Le Figaro í gær en hann er nú staddur á ferðalagi um Belgíu og Frakkland í fjögurra daga heimsókn.

Bandaríkin og Indland höfðu þegar hafið viðskiptaviðræður áður en Trump tilkynnti tolla sína á alþjóðleg samstarfslönd þann 2. apríl sl. en samkvæmt þeim lista voru 27% tollar settir á Indland.

Þar til nýlega voru Bandaríkin stærsta viðskiptaland Indlands og námu vöruviðskipti þjóðanna 190 milljörðum dala.

Donald Trump og Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hafa sett sér það markmið að tvöfalda þessa tölu í 500 milljarða dala. Það þykir hins vegar ólíklegt að ríkisstjórn Indlands muni bjóða upp á ívilnanir þegar kemur að viðkvæmum geirum eins og landbúnaði.

Indverjar hafa hins vegar þegar lækkað tolla á ýmsum vörum, þar á meðal Bourbon-viskíi og mótorhjól, en Bandaríkin eru enn með 45 milljarða dala viðskiptahalla við Indland, sem Trump segist vilja minnka.