Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Til stendur að formlega leggja niður stjórn Tryggingastofnunar með lagabreytingu á Alþingi nú í vor. Lagabreytingin verður hluti af frumvarpi ráðherra til breytingar á lögum um almannatryggingar og fleiri lögum.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið segir að þessi breyting gefi færi á því að hagræða í rekstri Tryggingastofnunar. Talið er að hagræðingin gæti numið á bilinu 10-12 milljónir króna á ársgrundvelli.
„Stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra þykja almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og bent hefur verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
„Í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar á stofnunum sem heyra undir yfirstjórn ráðherra hafa reglulega komið fram athugasemdir við skipan slíkra stjórna þar sem stjórnskipuleg staða þeirra sé oft ekki nógu skýr.“
Tryggingastofnunin hefur haft sérstaka stjórn frá árinu 2004. Skipun seinustu stjórnar rann út í nóvember síðastliðnum eða við lok síðasta kjörtímabils.
„Millibilsástand hefur þó ekki skapast þar sem yfirstjórnarhlutverk ráðherra og ráðuneytis hennar er skýrt lögum samkvæmt.“
Þess má geta að hagræðingarhópur forsætisráðherra lagði á dögunum til að skoðaður verði fýsileiki sameiningar Tryggingastofnunar og Sjúkratryggingar Íslands.