Instagram hefur byrjað með tilraunaverkefni sem felst í því að neyða notendur til að horfa á auglýsingar inn á milli þess að skoða færslur. Eins og er birtast auglýsingar inn á milli færslna á samfélagsmiðlinum og geta notendur skrunað fram hjá þeim.

Nýi eiginleikinn kallast auglýsingahlé og þurfa notendur að horfa á auglýsingarnar sem birtast áður en þeir geta haldið áfram að skoða Instagram.

Samfélagsmiðillinn hefur staðfest þetta í samtali við BBC og segir að Instagram sé alltaf að leita leiða til að auka gildi miðilsins fyrir auglýsendur.

Netverjar hafa hins vegar lýst yfir óánægju sinni en einn notandi á Threads sagði að ákvörðunin væri árásagjörn leið til að tryggja sér meiri pening frá auglýsendum. Annar notandi sagði á X að fólk myndi einfaldlega hætta að skoða Instagram.

Aðrir miðlar eins YouTube eru þekktir fyrir að sýna auglýsingar sem ekki er hægt að loka og þurfa því notendur að horfa á 15 til 30 sekúndna auglýsingar áður en myndbandið hefst.