Isavia skilaði 2,1 milljarðs króna hagnaði eftir skatta á árinu 2023 samanborið við 617 milljóna tap árið áður. Stjórn félagsins leggur til að 145 milljónum af hagnaði ársins verði lagðar í lögbundinn varasjóð. Isavia birti ársreikning í morgun.

Í fréttatilkynningu er bent á að meðal skýringa fyrir bættri afkomu er jákvæð gengisáhrif vegna langtímalána sem námu 180 milljónum króna á árinu 2023 samanborið við neikvæð gengisáhrif upp á 868 milljónir króna árið á undan.

Isavia skilaði 2,1 milljarðs króna hagnaði eftir skatta á árinu 2023 samanborið við 617 milljóna tap árið áður. Stjórn félagsins leggur til að 145 milljónum af hagnaði ársins verði lagðar í lögbundinn varasjóð. Isavia birti ársreikning í morgun.

Í fréttatilkynningu er bent á að meðal skýringa fyrir bættri afkomu er jákvæð gengisáhrif vegna langtímalána sem námu 180 milljónum króna á árinu 2023 samanborið við neikvæð gengisáhrif upp á 868 milljónir króna árið á undan.

Tekjur Isavia jukust um 23% eða 8,6 milljarða króna og námu 45,1 milljarði króna. Farþegar um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 7,8 milljón í fyrra samanborið við um 6,1 milljón árið 2022.

Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2023 var jákvæð um 8,1 milljarð króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 5,2 milljarða króna árið 2022.

„Árið 2023 var í meginatriðum í takt við okkar væntingar. Við fundum vissulega fyrir áhrifum efnahagsumhverfisins á neyslu almennings og eldsumbrotin á Reykjanesskaganum en engu að síður tókst að mínu mati afar vel til við að mæta þeim áhrifum í rekstrinum“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.

„Svo hafa þær áskoranir sem hafa fylgt því að vera með eldsumbrotin í bakgarðinum okkar síst minnkað nú á nýju ári“.

Sveinbjörn segir að mikil vinna hafi verið lögð í að tryggja samfellu í rekstri Keflavíkurflugvallar við þessar óvissu aðstæður. Keflavíkurflugvöllur sé t.d. þegar orðin sjálfbær þegar kemur að rafmagni á flugvellinum og félagið komið á þann stað að geta haldið uppi órofnum rekstri flugvallarins ef til þess kemur að fæðing á heitu vatni rofnar á ný.

Ekkert sem bendi til annars en að farþegaspá gangi eftir

Eignir Isavia voru bókfærðar á 112 milljarða króna í árslok 2023 samanborið við 94 milljarða árið áður og jukust því um hátt í 18 milljarða milli ára. Eigið fé félagsins nam 44 milljörðum.

Ingibjörg Arnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og mannauðs hjá Isavia, segir í tilkynningunni einn mikilvægasta varðan í rekstri félagsins á árinu 2023 hafi verið vel heppnuð skuldabréfaútgáfa þess. Isavia gaf út skuldabréf í lokuðu útboði að fjárhæð 175 milljónir evra til bandarískra fjárfesta, eða sem nemur rúmum 25 milljörðum króna.

Ingibjörg segir enn fremur að fjárfestar hafi sýnt Isavia mikið traust og áhuginn á félaginu hafi verið töluverður í þessari fyrstu skuldabréfaútgáfu Isavia.

„Þetta styrkti félagið verulega í þeirri mikilvægu uppbyggingu sem stendur yfir á Keflavíkurflugvelli og jákvæðar móttökur eru til merkis um vandaðan undirbúning af hendi Isavia,“ segir Ingibjörg.

„Við horfum björtum augum til ársins 2024 og til framtíðar. Farþegaspá okkar gerir ráð fyrir að tæplega 8,5 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll á árinu sem er um 9% fjölgun milli ára. Í dag er ekkert sem bendir til annars en að sú spá muni ganga eftir.

Í nýuppfærðri stefnumörkun móðurfélags Isavia er lögð áhersla á að styðja við framtíðarvöxt þeirra tengiflugfélaga sem velja Keflavíkurflugvöll sem sína tengistöð. Miðað við þær farþegaforsendur sem horft er til þarf áfram að byggja upp afkastagetu á flugvellinum og jafnvel hraðar en við stefndum áður að.“

Ingibjörg Arnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og mannauðs hjá Isavia.
© Aðsend mynd (AÐSEND)