Ásgeir Baldursson, eigandi Ísbílsins, hefur ákveðið að selja fyrirtækið en Ásgeir tilkynnti fyrst um söluna í færslu á Facebook-síðunni Fyrirtæki til sölu/Óskast – Kenntialan.is. Hann segir í samtali við mbl.is að virði Ísbílsins gæti verið yfir 150 milljónir króna.

Það er fyrirtækið Ísbílaútgerðin ehf. sem rekur Ísbílinn en Ásgeir segir söluna koma til vegna breytinga á persónulegum högum.

Ásgeir segir í samtali við Viðskiptablaðið að fyrirtækið sé ofboðslega sveigjanlegt og opið. Fyrirtækið starfrækir 14 bíla en hann segir að það sé margt sem tilheyri fyrirtækinu sem sé mjög verðmætt í óskildum rekstri.

„Þetta er rótgróið fyrirtæki en á þessu 31 rekstrarári voru þrjú tapár. Það voru tvö fyrstu árin og svo var eitt tapár í millitíðinni.“

Ísbíllinn hefur verið starfræktur síðan 1994 og byrjaði með einum bíl hvítasunnuhelgina það ár. Í dag rekur Ísbíllinn fjölda bíla sem keyra um allt land.