Ísfélagið leggur Austur Holding, stærsta hluthafa laxeldisfyrirtækisins Kaldvíkur, til fjármögnun að fjárhæð 341 milljón norskra króna, eða um 4,2 milljarða íslenskra króna, vegna þátttöku Austurs í 6,6 milljarða króna hlutafjáraukningu Kaldvíkur sem lauk 5. júní síðastliðinn.
Ísfélagið á 29,3% hlut í Austur Holding sem er stærsti hluthafi Kaldvíkur með 57,3% hlut eftir útboðið (54,1% fyrir útboðið).
Fjárfesting Ísfélagsins samanstendur annars vegar af eiginfjárframlagi til Austurs og hins vegar af breytanlegum hluthafalánum.
„Fjárfestingin er liður í stefnu Ísfélags að breikka tekjustofna þess og styðja við frekari uppbyggingu Kaldvik AS,“ segir í tilkynningu Ísfélagsins til Kauphallarinnar.
Austur fjárfesti fyrir 4,7 milljarða króna þátt í hlutafjáraukningunni, eða sem samsvarar 71% af heildarúthlutun útboðsins. Jafnframt stækkaði Austur hlut sinn í Kaldvík, sem áður hét Ice Fish Farm, fyrir ríflega 150 milljónir íslenskra króna með kaupum á markaði.
Samhliða hlutafjáraukningunni lauk Kaldvík samkomulagi við lánveitendur sem tryggði félaginu ríflega 33 milljarða króna lánsfjármögnun til 4 ára.