Ísfélag hf. hefur undirritað lánasamning að fjárhæð 220 milljónir evra, eða sem nemur 32 milljörðum króna, við hóp banka, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Lánið er til fimm ára og skiptist í tvo hluta, annars vegar í 150 evra milljóna afborgunarlán með 25 ára afborgunarferli og hins vegar að jafngildi 70 milljóna evra fjölmynta ádráttarlán.

Fram kemur að afborgunarhlutinn verði nýttur til að endurfjármagna öll núverandi vaxtaberandi lán og styrkja lausafjárstöðu félagsins og ádráttarhlutinn muni tryggja aðgang að lánsfjármögnun í framtíðinni.

Lánveitendur eru þrír alþjóðlegir og tveir íslenskir bankar. Þetta eru Coöperatieve Rabobank U.A., DNB Bank ASA, Nordea Bank ABP, Íslandsbanki hf. og Landsbankinn hf.

Coöperatieve Rabobank U.A., DNB Bank ASA og Nordea Bank ABP eru með jafnstóran hlut í fjármögnuninni, en Íslandsbanki hf. og Landsbanki hf. eru með lægri hlutdeild. Íslandsbanki hf. er umsjónar- og veðgæsluaðili lánsins.

„Sambankalánið staðfestir tiltrú lánveitenda á rekstri og fjárhagsstyrk Ísfélagsins. Félagið hefur á undanförnum árum fjárfest umtalsvert í stærri og betur búnum skipum og einnig í nýjum og öflugri búnaði í fiskvinnslum félagsins auk þess sem félagið hefur fjárfest í laxeldi sem er spennandi og ört vaxandi atvinnugrein hér á landi. Nýja lánið gefur félaginu gott tækifæri til áframhaldandi vaxtar og að efla rekstur,“ segir Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélags.