Íslenska fæðubótafyrirtækið Kavita undirritaði í dag samning við kínverska markaðsfyrirtækið Export Now Asia um sölu og dreifingu á fæðubótarvörumerkinu Iceherbs.
Ágúst Sindri Karlsson, stjórnarformaður Kavita, og Bo-Chen Jin, forstjóri Export Now Asia á kínverska meginlandinu, undirrituðu samninginn í höfuðstöðvum Kavita við Akralind í Kópavogi.
Samningurinn felur í sér aðgengi Kavita að kínverskri netverslun og mun Export Now Asia sjá um að selja vörur fyrirtækisins á síðunni Temu Global.
Ágúst segir í samtali við Viðskiptablaðið að samkvæmt áætlun verði fyrsta bretti sent til Kína í næsta mánuði og munu Kínverjar síðan fá tækifæri til að versla Iceherbs-vörur beint í gegnum kínverska netverslun á komandi mánuðum.
„Ég held að það séu mörg tækifæri í Kína og ég tel líka að besta leiðin til að fara inn á þann markað sé í gegnum fyrirtæki eins og Export Now Asia. Fríverslunarsamningurinn á milli Íslands og Kína er líka mjög mikilvægur liður í þessu og við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi.“
Upphaf Kavita má rekja til vörumerkisins Iceherbs, sem stofnað var árið 1993, þegar hluti frumkvöðla úr teyminu hóf að nýta íslensk fjallagrös í fæðubótarefni. Árið 2012 hófst svo framleiðsla og dreifing á bætiefnunum undir nafninu Iceherbs.
Árið 2021 eignaðist Kavita svo bætiefnalínuna Protis af Kaupfélagi Skagfirðinga en Protis byggir á nýtingu íslenskra sjávarafurða og rannsóknum á nýtingu þeirra fyrir fæðubótarefni.
Kínverjar bíða spenntir eftir íslenskum vörum
Bo-Chen segir að fyrirtækið sé mjög spennt fyrir samstarfinu en Export Asia Now mun sjá um allt sem tengist tollgæslu, vöruhús, flutninga, þjónustu við viðskiptavini og markaðssetningu.

„Mörg erlend fyrirtæki spyrja okkur út í kínverska markaðinn og segja að þau viti að hann sé mjög stór en telja að það sé oft erfitt að komast inn á hann. Það sem við bjóðum upp á er heildarlausn sem gerir þeim fyrirtækjum kleift að framleiða vöruna og senda hana til Kína. Eftir það sjáum við um restina.“
Hann segir að margir Kínverjar bíði spenntir eftir Iceherbs en það er jafnframt fyrsta fæðubótavörumerkið sem Kavita selur í Kína.
„Við höfum þegar talað við marga í Kína og þeir segjast mjög spenntir fyrir þessu vörumerki. Ísland hefur líka gott orðspor í Kína sem land sem býður upp á hágæðavörur sem eru hreinar og lífrænar og ég held að fæðubótaefni héðan muni sérstaklega fanga athygli þeirra.“