Íslensk stjórnvöld áforma að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu í öryggis- og varnarmál fyrir árið 2035. Þetta kom fram á leiðtogafundi NATO í Haag í Hollandi rétt í þessu en þar ákváðu leiðtogar þess að hækka framlög sín úr 2% í 5% af VLF.

Um er að ræða söguleg áform en þau eru sögð tengjast stigmagnandi ógn frá Rússlandi ásamt kröfum Donalds Trumps til Evrópuríkja um að eyða meira í varnarmál.

Ísland fellur þó ekki undir þessi samþykktu 5% viðmið og mun þess í stað skuldbinda sig við 1,5% framlag.

Öll ríki innan NATO höfðu áður samþykkt að leggja að minnsta kosti 2% af þjóðarframleiðslu sinni til varnarmála og minnst 20% af varnarútgjöldum þeirra áttu þá að fara í þróun á nýjum vopnum og tækni.