Tvöfalda þarf græna orkuframleiðslu á Íslandi til að þess að ljúka orkuskiptum að fullu. Þetta og fleira kemur fram í nýrri skýrslu Samtaka atvinnulífsins í tengslum við Ársfund atvinnulífsins: Orka er undirstaða hagsældar.

Þar segir að orkunotkun sé langstærsti orsakavaldur losunar gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og samsvari hátt í þremur fjórðum af allri losun.

„Ísland var á undan sinni samtíð að slíta í sundur sambandið á milli orkunotkunar og kolefnislosunar. Það er staðreynd sem við getum verið stolt af en hún gerir okkur jafnframt erfiðara fyrir að ná sama hlutfallslega árangri í samdrætti losunar og önnur lönd,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Samkvæmt gögnum SA þá þurfa Íslendingar að tvöfalda græna orkuframleiðslu sína til að ljúka orkuskiptum að fullu. Þá þarf einnig að margfalda hraða losunarsamdráttar til þess að standast loftslagsmarkmið Íslands fyrir árið 2030.

„Það er því ánægjulegt að sjá orkuverkefni í Búrfellslundi og Hvammsvirkjun, Suðurnesjalínu og jarðhitaleitarátak en mikilvægt er að varðveita áfram samstöðu um græna orkuframleiðslu,“ segir Sigríður Margrét.

„Orka er undirstaða hagsældar – sterkt samhengi er á milli orkunotkunar þjóða og þeirra verðmæta sem þær skapa. Lífskjör á Íslandi eru góð og það endurspeglast í mikilli orkunotkun á Íslandi,” segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Gögn SA sýna að þrátt fyrir góðan vilja til þess að standast loftslagsmarkmið Íslands árið 2030 þá þarf íslenska þjóðin að margfalda hraða losunarsamdráttar.

„Með hliðsjón af tæknisþroska í lykilgeirum þá er markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi árið 2040, sem fest hefur verið í lög, utan seilingar,“ segir Sigríður.