Vextir hjá Íslandsbanka hækka á mánudaginn 4. september í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 23. ágúst síðastliðinn.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,50 prósentustig. Samkvæmt tilkynningu Íslandsbanka munu vextir hjá Ergo síðan breytast 8. september næstkomandi.
Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:
- Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um 0,50 prósentustig.
- Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum einstaklinga og fyrirtækja hækka um allt að 0,50 prósentustig.
- Vextir á almennum veltureikningum hækka um 0,35 prósentustig.
- Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,50 prósentustig.
- Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,40 prósentustig.
- Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,50 prósentustig.
- Fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,50 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.
- Breytilegir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,30 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,50 prósentustig.
- Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,50 prósentustig.
Í tilkynningu segir að breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.