Íslandsbanki og VÍS skrifuðu í dag undir samstarfssamning, að því er kemur fram í tilkynningum félaganna til Kauphallarinnar.

„Rauði þráðurinn í samstarfinu er að viðskiptavinir, sem eru í viðskiptum við bæði félög, njóta sérstaks ávinnings í vildarkerfum beggja félaga. Með samstarfinu fá viðskiptavinir jafnframt betri yfirsýn yfir fjármálavörur og tryggingar.“

VÍS með þjónustu í nokkrum útibúum Íslandsbanka

VÍS kemur til með að bjóða upp á þjónustu í nokkrum af útibúum Íslandsbanka og vera með sýnileika í öllum dreifileiðum bankans, vef, appi og netbanka. VÍS er í dag með þjónustuskrifstofur á sjö stöðum en Íslandsbanki er með tólf útibú.

Félögin segja að með samstarfinu sé þjónusta við viðskiptavini beggja félaga aukin og horft til fjölgunar viðskiptavina og að auka ánægju núverandi viðskiptavina. Samstarfið og útfærslur verði kynnt nánar á vormánuðum.

„Við erum mjög spennt að bjóða tryggingar sem hluta af vöruframboði Íslandsbanka og auka þjónustuna við okkar viðskiptavini,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.

„Við sjáum fjölmörg tækifæri í því að vinna með VÍS og nýta meðal annars fríðindakerfið okkar, Fríðu, sem er eitt öflugasta sinnar tegundar á landinu. Vegferðin með VÍS er einnig hluti af sókn bankans á nýju ári og hluti af nýrri stefnu hans. Þar er horft til frekari krosssölu og enn betri þjónustu. Við hlökkum því mjög til að sækja fram í samstarfi við VÍS.“

„Við erum ákaflega stolt af því að kynna þetta samstarf við Íslandsbanka. Með því stígum við stórt skref í að bæta upplifun viðskiptavina okkar en með því að sameina krafta okkar gerum við viðskiptavinum kleift að fá bæði fjármála- og tryggingaþjónustu á einum stað,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS.

„Við hlökkum til að kynna útfærslur samstarfsins betur á næstu mánuðum og erum fullviss um að viðskiptavinir muni upplifa aukinn ávinning enda leggja bæði félög áherslu á framúrskarandi þjónustu.“