Orkan, dótturfélag Skeljar fjárfestingafélags, hefur uppfyllt öll skilyrði kaupsamninga við hluthafa Samkaupa um kaup á síðarnefnda smásölufyrirtækinu, sem rekur m.a. verslanir Nettó, að undanskildu samþykkis Samkeppniseftirlitsins fyrir viðskiptunum.

Í tilkynningu Skeljar til Kauphallarinnar kemur fram að Orkan hafi nú gengið frá kaupsamningi við hluthafa Samkaupa sem eiga samtals 98,5% hlut í félaginu. Kaupverðið verður greitt með afhendingu á nýju hlutafé í Orkunni.

Íslandsbanki hefur samþykkt að veita sölutryggingu um áskrift að nýju hlutafé í Orkunni, eða nýju móðurfélagi samstæðu, að verðmæti a.m.k. 2.000 milljónir króna sem skal nýtt til að efla fjárhagsstöðu Samkaupa.

„Sölutryggingin mun gilda í 180 daga sem er unnt að nýta til að kynna nýja samstæðu fyrir fjárfestum.“

Skilyrði í ofangreindum kaupsamningi er að fyrir liggi skuldbindandi áskriftarloforð frá fjárfestum, eða sölutrygging íslensks banka, um áskrift að nýju hlutafé að verðmæti a.m.k. 2 milljarðar króna.

Skel tilkynnti þann 22. maí sl. um undirritun kaupsamnings um kaup Orkunnar á öllum 53,1% hlut Kaupfélags Suðurnesja í Samkaupum. Samkaup er metið á 5,6 milljarða króna í viðskiptunum. Verðmæti hlutabréfa Orkunnar við uppgjör viðskiptanna verður 10,7 milljarðar króna‏.

Tilgreint var að samningurinn geri ráð fyrir að samstæða félaganna verði mynduð með sambærilegu sniði og skráð smásölufyrirtæki hérlendis.