Íslandsbanki hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar þess að stjórn Kviku banka hafnaði beiðni bankans um samrunaviðræður.

„Bankinn mun taka afstöðu stjórnar Kviku til nánari skoðunar, meðal annars í samhengi við önnur tækifæri bankans til sóknar og hagsmuni hluthafa Íslandsbanka þar að lútandi,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka.

Íslandsbanki og Arion banki óskuðu báðir fyrir rúmum tveimur vikum eftir því við stjórn Kviku að hefja samrunaviðræður. Íslandsbanki sagðist reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum.

Kvika tilkynnti eftir lokun markaða í dag að stjórn bankans telji ekki forsendur til að hefja samrunaviðræður á grundvelli framangreindra erinda. Stjórn Kviku sagðist þó reiðubúin að endurmeta ákvörðun sína, séu aðilar tilbúnir að endurskoða þær forsendur um virði Kviku sem fram komu í framangreindum erindum.

Sem fyrr segir hefur Íslandsbanki gefið það út að hann hyggist taka afstöðu stjórnar Kviku til nánari skoðunar, m.a. í samhengi við önnur tækifæri á markaðnum.

Íslandsbanki bendir í tilkynningu sinni á yfirlýst áform um að taka til skoðunar ytri vöxt og að hann hafi verið með ýmsa möguleika til skoðunar til að nýta umfram eigið fé í bankanum.

„Þá er Íslandsbanki þeirrar skoðunar að frekari samþætting á fjármálamarkaði muni leiða til mikillar virðisaukningar fyrir hluthafa bankans, viðskiptavini og hagkerfið allt.“