Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka hf. að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja. Sjá má bréf Íslandsbanka til forsvarsmanna Kviku banka hér.
Tilkynning Íslandsbanka fylgir í kjölfar þess að Arion banki óskaði eftir samrunaviðræðum við Kviku í gær.
Stjórn Kviku banka hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún segist ætla að taka erindið til umræðu og ákveða næstu skref af hálfu bankans.
Íslandsbanki segist í tilkynningu til Kauphallarinnar reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum. Enn fremur sé bankinn tilbúinn til að ræða fyrirkomulag sem gefi hluthöfum Kviku kost á að fá greitt með hlutabréfum og reiðufé.
„Samþykki Kvika þessa tillögu Íslandsbanka er gert ráð fyrir að forsvarsmenn félaganna hittist til að ræða næstu skref, sem yrðu háð nauðsynlegum leyfum eftirlitsaðila.
Þar sem bæði félögin eru eftirlitsskyld og skráð á hlutabréfamarkaði og lúta upplýsingaskyldu, gerir Íslandsbanki ráð fyrir að þörf á áreiðanleikakönnun verði takmörkuð. Jafnframt vísar Íslandsbanki til nýlegrar útboðslýsingar bankans sem unnin var í kjölfar slíkrar könnunar.“
Íslandsbanki óskar eftir svari við bréfinu innan tveggja vikna en er reiðubúinn til að lengja þann frest, ef Kvika óskar þess.
Íslandsbanki segist telja að frekari samþætting verði fjármálakerfinu á Íslandi til hagsbóta. Þá hafi Íslandsbanki lýst yfir markmiðum sínum um áframhaldandi vöxt og vilja til að taka virkan þátt í þróun íslensks fjármálamarkaðar.
„Með það í huga telur Íslandsbanki að sameining Íslandsbanka og Kviku geti skapað veruleg verðmæti fyrir bæði félög, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.“
Áttu í viðræðum fyrir tveimur árum síðan
Íslandsbanki og Kvika áttu í formlegum samrunaviðræðum á fyrri hluta árs 2023, sem Kvika átti þá frumkvæði að.
Viðræðunum var slitið nokkrum dögum eftir að fjármálaeftirlit Seðlabankans sektaði Íslandsbanka um 1,2 milljarða króna vegna brotalama í tengslum við framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka, og boðaður var hluthafafundur með stjórnarkjöri hjá Íslandsbanka.
Alexander Jensen Hjálmarsson, stofnandi greiningarfyrirtækisins Akkurs, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið í síðustu viku að hann ætti ekki von á að Íslandsbanki og Kvika myndu reyna aftur við samruna í ljósi þess að Kvika seldi TM í fyrra.