Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún greinir frá því að formenn og fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi munu í dag leggja fram tillögu til þingsályktunar um kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi.

Sjúkrahúsið verður til notkunar fyrir særða hermenn í Úkraínu en þrjú slík sjúkrahús hafa þegar verið send til Úkraínu og er óskað eftir þremur til viðbótar. Eistnesk stjórnvöld lögðu til eitt, Þjóðverjar annað og Noregur og Holland í sameiningu hið þriðja.

Framleiðslutími á sjúkrahúsi ef þessu tagi er rúmlega hálft ár og áætlaður kostnaður nemur um það 1.200 milljónum króna.

Í tilkynningu segir að frá því innrás Rússa hófst hafi stuðningur Íslands við Úkraínu verið skýr, bæði meðal almennings og stjórnvalda. Á Alþingi hafi ríkt þverpólitísk samstaða um stuðning og vilja formenn flokkanna leggja áherslu á að undirstrika þá samstöðu með þessari gjöf.

„Sjúkrahúsið sem um ræðir skiptir mun sinna bæði særðum hermönnum og almenning, en hægt er að starfrækja þau sjálfstætt og án tengingar við fyrirliggjandi innviði. Úkraínsk stjórnvöld hafa komið því á framfæri við íslensk stjórnvöld að brýn þörf sé á færanlegum neyðarsjúkrahúsum fyrir særða hermenn og óskað eftir stuðningi Íslands í þeim efnum.“

Forsætisráðherra bætir við að forseti Úkraínu, Volodomyr Zelensky, hafi ítrekað þakklæti fyrir yfirgnæfandi stuðning íslensku þjóðarinnar við málstað Úkraínu á fundum sínum með forsætisráðherra Íslands.