Fjölbreyttar afurðir frá íslenskum frumkvöðlum verða í aðalhlutverki á Matarmarkaði smáframleiðenda í Hagkaup dagana 19.–26. apríl. Þátttakendur í ár verða 21 talsins og munu þeir bjóða gestum Hagkaups upp vörur sínar á meðan markaðurinn stendur yfir.

Með Matarmarkaði smáframleiðenda segist Hagkaup vilja styðja við íslenska smáframleiðendur og vekja athygli á fjölbreyttri flóru af gæðavörum sem íslenskir frumkvöðlar hafa upp á að bjóða. Á sama tíma vill Hagkaup beina kastljósinu að nýsköpun í matvælaframleiðslu á Íslandi.

„Við erum einstaklega stolt af matarmarkaði smáframleiðenda, þar sem viðskiptavinum býðst að kaupa vörur frá okkar frábæru íslensku smáframleiðendum sem að okkar mati eru algjörar rokkstjörnur. Það getur verið flókið ferli að koma vöru á markað og þá sérstaklega þegar um smáframleiðendur er að ræða. Þess vegna þykir okkur mikilvægt að styðja við framleiðendur á Íslandi og veita þeim tækifæri til að selja sínar vörur í okkar verslunum. Nýsköpun í matargerð hér á landi er mjög fjölbreytt og blómleg og við gerum okkar allra besta til að hampa íslensku matarhandverki með því að bjóða upp á gott úrval í okkar verslunum. Þetta er sannkölluð sælkerahátíð og því er tilvalið fyrir alla sem elska góðan mat og vilja styðja við íslenska frumkvöðla að kíkja til okkar 19.–26. apríl," segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups.

Hluti smáframleiðendanna sem tekur þátt í matarmarkaðnum að þessu sinni hefur notið stuðnings úr Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, í gegnum tíðina. Hlutverk sjóðsins er að styðja frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í matvælaframleiðslu á Íslandi. Sérstök áhersla er lögð á stuðning til innlendra verkefna sem taka tillit til sjálfbærni en á síðasta ári var 16 milljónum úthlutað úr sjóðnum til 12 verkefna.

Matarmarkaður smáframleiðenda fer fram í Hagkaup Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Garðabæ og Akureyri 19.–26. apríl. Þeir smáframleiðendur sem taka þátt að þessu sinni eru:

Ábót íslensk fæðubót

Biobú

Brælubakaríið

Ella Stína Vegan

Emmson Sveppir

Eylíf

Gelato

Ísgerðin á Akureyri

Isqueeze Ísland

Kaja Organic

Ketó Eldhúsið

Litlabýli

Matarsmiðjan

Pesto.is

Pönnukökuvagninn

Pure Natura

Rabarbia

Skúbb

Spírubarinn

SVAVA sinnep

Vera Örnudóttir