Fyrir rúmu ári síðantók ráðgjafafyrirtækið Elements by BBA//Fjeldco til starfa en fyrirtækið heldur utan um verkefni BBA//Fjeldco á sviði endurnýjanlegra orkuauðlinda og veitir ráðgjöf um rannsóknir og vinnslu, aðallega þegar kemur að jarðvarma. Í dag er Elements með skrifstofur bæði á Íslandi og í Frakklandi en á undanförnum árum hefur starfsfólk Elements verið ríkisstjórnum og ríkisstofnunum í yfir 15 löndum innan handar við þróun löggjafar um nýtingu jarðvarma.
Heilt yfir hefur starfsfólk félagsins þó komið að verkefnaþróun og ráðgjöf í á þriðja tug landa en mikið er unnið með Mið-Ameríku, Austur-Afríku, Austur-Evrópu og Asíu.
Megintilgangur verkefna Elements er að aðstoða lönd sem eru rík af endurnýjanlegum auðlindum en hafa ekki byggt upp eða sett á fót fullnægjandi löggjöf og leyfisveitingarferli fyrir nýtingu slíkra auðlinda. Mörg verkefni Elements hafa verið unnin með stuðningi og í samstarfi við alþjóðlega þróunarbanka á borð við Alþjóðabankann (World Bank), í tengslum við þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og í samstarfi við Uppbyggingarsjóð EES.
Flytja út íslenska þekkingu
Antoine Lochet, forstöðumaður skrifstofu Elements í Frakklandi, hefur starfað hjá Elements og áður BBA//Fjeldco í 19 ár en hann segir Ísland búa yfir mikilli þekkingu á sviði jarðvarma.
„Það sem við erum með er lögfræðiþekking, sem er kannski ekki auðvelt að flytja út. Þetta byrjaði þannig að við unnum mikið með verkfræðingum og jarðvísindamönnum og við spiluðum lítið hlutverk í tæknilegri verkefnum. En það kom í ljós að það var mikil eftirspurn eftir þessari þekkingu þegar kemur að löggjöf,“ segir Antoine.
Baldvin Björn Haraldsson, stjórnarformaður Elements, segir að það hafi tekið tíma að byggja upp þá þekkingu sem Elements býr yfir.
„Það að byggja upp þekkingu á þessu sviði tekur óhemju tíma og þegar við sömdum fyrstu löggjöfina sem við vorum beðin um að semja, sem var fyrir Djibútí í Austur-Afríku, þá þurftum við að leggjast yfir löggjöf ýmissa landa til þess að átta okkur á hvernig þessu er best háttað. Þannig að það var mikill undirbúningur og mikil vinna,“ segir Baldvin Björn.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.