Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress tryggði sér á dögunum 3 milljón dollara fjárfestingu, eða sem nemur um 410 milljónum króna, fyrir þróun á ótilkynntum leik fyrirtækisins. Fjárfestingin kemur úr garði Behold Ventures, Brunni og Crowberry Capital.

Íslenska leikjafyrirtækið Porcelain Fortress tryggði sér á dögunum 3 milljón dollara fjárfestingu, eða sem nemur um 410 milljónum króna, fyrir þróun á ótilkynntum leik fyrirtækisins. Fjárfestingin kemur úr garði Behold Ventures, Brunni og Crowberry Capital.

Starfsmönnum fjölgað úr 4 í 14 í ár

Porcelain Fortress gaf árið 2019 út tölvuleikinn No Time to Relax sem selst hefur í um 350 þúsund eintökum. Söluhæsti mánuður leiksins var í ágúst á þessu ári, fimm árum eftir að leikurinn kom á markað. Leikurinn hefur verið þýddur á tíu tungumálum, þar á meðal íslensku.

Samhliða auknu fjármagni hefur teymi Porcelain Fortress stækkað til muna á árinu, eða úr fjórum starfsgildum í fjórtán, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Meðal stöðugilda sem ráðið hefur verið í er nýr forstjóri, listrænn stjórnandi, forritarar, leikjahönnuður, og textasmiður.

Þrátt fyrir að enn sé margt á huldu um nýjasta verkefni Porcelain Fortress er Ingólfur Ævarsson, forstjóri fyrirtækisins, spenntur fyrir næstu mánuðum. Ingólfur, sem hóf störf hjá fyrirtækinu í ár, er leikjabransanum vel kunnur, enda býr hann yfir sextán ára reynslu hjá CCP og 1939 Games.

„Teymið okkar sannaði það með útgáfu No Time to Relax að við getum skapað skemmtilega leiki uppfulla af spennandi og hlægilegum augnablikum,“ segir Ingólfur.

„Það voru þessi augnablik sem vöktu athygli áhrifavalda og tölvuleikjastreymara sem eru lykillinn að því að koma leikjum á borð við þennan á framfæri á markaðnum í dag."

Ingólfur Ævarsson tók við sem forstjóri Porcelain Fortress í ár.

Stefna Porcelain Fortress hefur frá upphafi verið að framleiða sígilda leiki með nútímatækni og segir Ingólfur fjárfestinguna mikinn byr í segl fyrirtækisins til að halda því áfram.

„Fyrri leikur okkar hefur nú þegar fengið tugmilljón áhorf á streymisveitum og verða samfélagsmiðlar hornsteinn í framleiðslu á nýja leiknum okkar.“

Fyrirtækið hefur verið styrkt af Tækniþróunarsjóði allt frá stofnun til dagsins í dag. Ingólfur segir að ef ekki hefði verið fyrir þann stuðning þá væri fyrirtækið ekki á þeim stað sem það er í dag.

Í stjórn Porcelain Fortress sitja Brynjólfur Erlingsson hjá Behold Ventures, Sigurður Arnljótsson hjá Brunnur Ventures, Helga Valfells hjá Crowberry Capital, og Guðrún Helga Brynleifsdóttir.

„Porcelain Fortress hefur sýnt mikla seiglu í gegnum árin og hefur ástríða teymisins fyrir því sem það vinnur að heillað okkur. Fyrsti leikurinn þeirra skilar enn töluverðum tekjum og sjáum við spennandi tækifæri á markaðnum sem þau sækja á,“ er haft eftir Sigurði Arnljótssyni stjórnarmanni.

Stikla fyrir No Time to Relax leikinn sem Porcelain Fortress gaf út fyrir fimm árum: