Bandaríska íþróttabarakeðjan Twin Peaks mun hefja viðskipti með hlutabréf á Nasdaq í dag undir heitinu TWNP. Frumútboð keðjunnar gæti reynst jákvætt skref fyrir önnur veitingahús sem eru að íhuga svipaða ákvörðun.

Þetta kemur fram á vef CNBC en þar segir að markaðurinn hafi verið erfiður fyrir veitingarekstur undanfarin ár í ljósi verðbólgu og vaxtahækkana.

Markaðsaðstæður hafa gert það að verkum að sum veitingafyrirtæki hafa ákveðið að einblína á sölu frekar en að freista gæfunnar með frumútboðum. Mörg fyrirtæki eru hins vegar vongóð um að markaðurinn í ár verði betri.

„Síðasta ár var sterkara en 2023 og við gerum ráð fyrir að 2025 verði enn betra með fleiri frumútboðum. Það gæti vissulega haft í för með sér fleiri svipaðar ákvarðanir,“ segir Nick Einhorn, varaforseti rannsókna hjá Renaissance Capital.

Twin Peaks verður ekki fyrsta neytendafyrirtækið sem tekur stökkið á þessu ári en svínakjötframleiðandinn Smithfield Foods hóf viðskipti með bréf sín á Nasdaq á þriðjudaginn eftir að hafa verið undir kínverskri stjórn í áratug.